þriðjudagur, janúar 15, 2008

Jæja

Nú er ég búin að grafa upp gamla lappann minn og nettengja hann en verð að segja að ég á í bölvuðum vandræðum með að skrifa íslenska stafi.

Allt gott frá Manchester. Allt frekar grátt úti þannig að við kúrum okkur inni, lesum og horfum a bíómyndir sem við erum löngu búin ad niðurhlaða en ekki látið verða af því ad kíkja á þær. Sá reyndar eina góða íslenska um helgina, Astrópía og mér fannst hún bara mjög skemmtileg. Svo er ég að lesa um hana Karítas eftir Kristínu Marju Baldursdóttur og hún er algjört æði, get varla lagt hana frá mér.

Á framhaldið á náttborðinu.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mikið gaman að heyra frá þér aftur. Vertu nú dugleg að upplýsa okkur um lífið í Man.

Nafnlaus sagði...

Sammála fyrsta ræðumanni!

Kveðja,
Linda Rós.

Nafnlaus sagði...

Hæ sæta
Gaman að heyra af ykkur. Ég var einmitt að klára framhaldið (óreiða á striga).....voða gaman að geta stundum lesið eitthvað annað en skólabækurnar.
knús til ykkar úr 10 stiga frostinu...
Sigga Maja

Nafnlaus sagði...


ertu nokkuð búin að týna lappanum aftur?????
kv. sigga Maja