föstudagur, apríl 02, 2004

Norwich

Ég er ekki komin til Íslands eins og mætti halda af íslenskum stöfum heldur en ég komin til Norwich til þeirra Lindu Rósar og Tómasar...og litla Bjarts og fékk ég aðeins að misnota tölvuna þeirra. Það er heldur betur búið að taka vel á móti mér og líst mér mjög vel á þessa borg...mun notalegri en Manchester, er á stærð við Reykjavík. Bjartur litli leikur við hvern sinn fingur og hef ég sjaldan séð svona fallegt barn enda komin af afar myndalegu fólki...he he...er búin að vera mjög vinsæl á heimilinu. Linda og Tómas eru búin að koma sér vel fyrir hérna í Norwich og hefur verið afskaplega notalegt að heimsækja þau...takk fyrir mig.

Svo er það bara London baby...

Engin ummæli: